Náttúrustofa Vestfjarða (NAVE) er náttúruvísindastofnun staðsett í Bolungarvík
NAVE starfar samkvæmt lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur, nr. 60/1992, með síðari breytingum. Um starfsemina er reglugerð um skipulag og starfsemi Náttúrustofu Vestfjarða í Bolungarvík, nr. 459/1996 og samþykktir Náttúrustofu Vestfjarða frá 2012. Þá tekur starfsemi NAVE á hverjum tíma mið af samningum aðildarsveitarfélaga stofunnar við umhverfis- og auðlindaráðuneytið.
Helstu hlutverk náttúrustofa eru tilgreind í 11. grein laga nr. 60/1992, með síðari breytingum. Þau eru:
- að safna gögnum, varðveita heimildir um náttúrufar og stunda vísindalegar náttúrurannsóknir, einkum í þeim landshluta þar sem náttúrustofan starfar.
- að stuðla að æskilegri landnýtingu og náttúruvernd og veita fræðslu um umhverfismál og náttúrufræði og aðstoða við gerð náttúrusýninga.
- að veita náttúruverndarnefndum á starfssvæði stofunnar upplýsingar og ráðgjöf á verksviði stofunnar samkvæmt ákvörðun stjórnar náttúrustofu hverju sinni.
- að veita ráðgjöf, sinna rannsóknum og sjá um vöktun gegn greiðslu á verksviði stofunnar að beiðni sveitarfélaga, ríkis eða stofnana þeirra, einstaklinga, fyrirtækja eða annarra aðila.
- að annast almennt eftirlit með náttúru landsins, sbr. 7. gr. náttúruverndarlaga, nr. 44/1999, einkum í þeim landshluta þar sem náttúrustofan starfar; Náttúruvernd ríkisins skal gera samning um slíkt eftirlit við náttúrustofur sem staðfestur er af ráðherra.